07 maí 2005

Líkt og margar góðar sögur hefst þessi á misskilningi

Það fór vel á því að hljómsveitin mín fengi loksins nafn. Eftir miklar vangaveltur sem oft á tíðum urðu æði pínlegar (það er fátt erfiðara en að skíra hljómsveit) kom nafnið til mín á silfurfati. MENN ÁRSINS skal hún heita og ég er bara nokkuð ánægður með það! Í kvöld leikum við á Café Aroma í Hafnarfirði og ef guð lofar getum við tekið upp fjögur fyrstu lögin næstu helgi. Útlitið er því nokkuð bjart hjá poppmörðum.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters