Engar upptökur þessa helgina, anskúðens...
Í dag er ég heima með syninum sem hefur gelt og hóstað í alla nótt og dótturinni sem liggur í próflestri og þarf meðal annars að gjörþekkja Híbýli vinadanna, þá annars ágætu bók. Ég hef verið að glugga í hana aftur, las hana í úti í Danmörku á sínum tíma. Jóskiper á að líkum eitt af betri kommentum bókarinnar: "Helvítis anskúðens Íslendingar, dansa núna."
Ekkert varð af upptökum þessa helgi. Enginn fannst til þess að gegna hlutverki upptökustjórans. Þetta dregst vonandi ekki of lengi. Sendi tilinningaþrungið bréf á Menn ársins í gær og vona að það verði til þess að einhver þeirra fái stórkostlega hugmynd um rétta manninn í stólinn. Lítið næði hefur verið til þess að semja, eða þróa áfram þær hugmyndir sem eru komnar nokkra mánuði á leið, en með hækkandi sól... -verð í það minnsta að fara að bjóða upp á nýt efni áður en allir verða dauðleiðir á því að spila þessi sömu fjögur lög.
Ólafur fíólín bíður eftir okkur feðginum, læt hann ekki bíða lengur.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home