Tími kraftaverkanna er hreint ekki liðinn!
Hver hefi trúað því kl. 19.30 á miðvikudaginn að vonleysi mitt ætti eftir að snúast í sigurvímu aðeins 15 mínútum síðar? Það gerði ég ekki sjálfur ef ég á að vera alveg hreinskilinn. En þvílíkt kvöld fyrir aðdáendur Rauða-hersins, og sjálfsagt sex mínútur frá helvíti fyrir spaghetti-fótboltaaðdáendur...
Áfram Liverpool!
Nú, af poppdraumum er það helst að um síðustu helgi rötuðu fjögur lög á band (eða inn á harða diskinn - hefur ekki sama sjarmann) og útkoman hefur fengið ágætar viðtökur þeirra fáu sem hafa fengið að hlusta. Ég verð að spila á Rósenberg í kvöld hjá Dodda vini mínum. Ég vona að það verði engir hressir saumaklúbbar að leita sér að tónlistarmanni til að fjarstýra á vegi mínum þar.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home