19 október 2005

Sveiflum okkur nú öll í gardínum

Ég kemst af án DV, hef tvisvar borgað fyrir blaðið á fyrstu vikum Illuga Jökulssonar í ritsjórastóli en hef ekki séð ástæðu til þess leggja mitt af mörkum síðan. Mér duga auglýsingar þess sem birtast í Fréttablaðinu. Í dag, eða í gær (manekki) sá ég mynd af Rannveigu Rist undir fyrirsögninni: "Sveiflaði sér í gardínum og hrópaði: Árás."

Þessi redúseraði lestur á DV dugir fullkomlega. Ég get glatt mig við þá mynd sem fyrirsögnin málaði í huga mér í allan dag og er nokkurn veginn viss um að ef ég læsi fréttina (uppspunann, þvæluna, hvað viljið þið kalla það) yrði ég bara fyrir vonbrigðum. Húrra fyrir þeim sem sveifla sér í gardínum og hrópa: Árás. Sjálfur geri ég það allt of sjaldan.

Ég hef fengið athugasemdir þess eðlis að neikvæðnin hafi verið full áberandi undanfarið í innleggjum mínum. Hef tekið það til greina og bregst við af lipurð innan skamms.

Knattspyrnufélag Liverpúlborgar leikur í kvöld. Ætli maður kíkí ekki á.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters