Óraunverulegt hjal

Mér verður tíðrætt um orð.
Ætli fræðimenn komandi alda muni glotta út í annað þegar sögubókin opnast á blaðsíðunum um fyrstu ár 21. aldarinnar. Þess tíma þegar mannkynið, eða nokkrir oddvitar þess, fundu raunveruleikann? Eða ætti ég að segja fundu UPP raunveruleikann og urðu svo stoltir að þeir hömpuðu honum í 50 sjónvarpsþáttum á viku.
Hvað er þá raunveruleiki og hvar hefur hann haldið sig hingað til? Hefur þetta orð ekki haft neina merkingu fyrr en nú, eða hefur þessi óþolandi skilningur, sem ávallt þvælist fyrir á milli máls og merkingar farið að gera sig breiðan aftur og enn?
Hvað eiga menn við? Er átt við þann ytri veruleika sem blasir við okkur flestum og við getum verið sammála um í grófum dráttum. Okkur greinir vissulega á um ýmislegt, en við erum nokkuð sammála um staðreyndir líkt og hæð Esjunnar, það að jörðin snúist um sólina og að hlutir falli til jarðar sökum þyngdaraflsins og þar fram eftir götum. Eða hvað? Er til annar raunveruleiki utan sjónvarpsþáttanna, bara ekki alveg eins raunverulegur og hann?
Hvers vegna eru fimm hommar að pota í bumbuna á gagnkynhneigðum manni með derhúfu raunverulegri en selur sem veltir sér á grjótgarði í vogskornum firði í Noregi? Aldrei datt neinum í hug að kalla náttúrulífsmyndir (sem RÚV sá einu sinni sóma sinn í að hafa reglulega á prógrammi sínu) raunveruleikasjónvarp. Og ef því er að skipta, hvað er raunverulegra við 10 stelpur sem keppa um að verða sýningardömur en 22 fótboltamenn sem keppast við að vinna leikinn fyrir sitt lið.
Það hefur enginn einkarétt á raunveruleikanum. Þangað til annað kemur í ljós lít ég svo á að hann sé sameign og sé meira að segja býsna svipaður, hvort sem í honum finnist fimm snyrtilegir hommar, selur á steini, 10 þvengmjóar sýningardömur, 11 fótboltamenn, veðurfréttamaður, 20 manns að leika Róbinson Krúsó eða hvað annað. Esjan er jafn há fyrir okkur öllum.

1 Comments:
Heyr!
kv.
Sævar
Skrifa ummæli
<< Home