14 september 2005

Aumingja Jessica


Þversagnir eru heillandi þáttur mannlegrar breytni. Geta verið sauðmeinlausar og jafnvel sniðugar en þess eru sannarlega dæmi að þær geti verið alvarlegar.

Varð strandaglópur í sjónvarpssófanum einu sinni sem oftar á dögunum. Horfði á David Letterman. Hann er orðinn frekar gamall blessaður, komst þó í gegnum vaktina stórslysalaust en virtist ekki njóta þess að ráði. Hvað um það, að þætti hans loknum tók við stórbrotinn sjónvarpsþáttur sem tekur flestu öðru fram.

Þátturinn er af tegund svokallaðra raunveruleikaþátta og fjallar um hina ungu, hæfileikaríku listakonu Jessicu Simpson. (Ég hef samt ekki fengið það alveg á hreint ennþá í hverju hæfileikar hennar liggja einna helst). Hún er elt á röndum af kvikmyndagerðarmönnum sem festa líf hennar á filmu frá morgni til kvölds. Áhorfendur fá að fylgjast með þeim skötuhjúum, Jessicu og Nick, vangaveltum þeirra um hvort þau borði á þessum veitingastaðnum eða hinum, hvort þau eigi að fara til Florida í “frí” eða til Hawai og þar frameftir götum.

Það getur verið snúið að vera hæfileikarík, ung stjarna í USA.

Jessica og Nick eru gott fólk. Þau koma vel fram við aðra og hreykja sér ekki af hæfileikum sínum eða auðæfum. Eg fann því eðlilega til með þeim skötuhjúum þegar þau í raunveruleikaþættinum sínum, með kvikmyndatökumann, hljóðupptökumann og hver veit, kannski einn aðstoðarmann þeirra, ætluðu sér að eiga rómantíska kvöldstund á (að sjálfsögðu) einhverjum veitingastað,... hvað haldið þið. Spretta ekki upp óprúttnir paparazzi-andskotar með myndavélar og eyðileggja fyrir þeim kvöldið. Greyið Jessica og Nick þurftu að flýta sér heim í burtu frá myndavélunum, (með kvikmyndatökumanninn og hljóðupptökumanninn) svo þau gætu nú fengið að vera í friði. Er engin virðing borin fyrir einkalífi fólks -ég bara spyr?

Það getur svo sannarlega verið snúið að vera hæfileikarík, ung stjarna í USA.

...

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters