Sjá ég færi yður mikinn fögnuð: Strætó
Hana nú! Ég hef fundið leið til betra lífs!
Hún er sú að taka strætó til og frá vinnu. Hvað er betra en að fá sér frískandi göngutúr í morgunsárið, hlera samræður annarra farþega, eða líða inn í sinn innri veruleika (sem er jú sjálfsagt mis-spennandi eftir því hver á í hlut) og gleyma sér. Féll þó í helst til djúpa leiðslu í gær og stökk skömmustulegur af við Hljómskálann, einni stöð síðar.
Svo er það hún Katrín!
Æðir um allt másandi og blásandi. Skildi Subban nokkuð vera fokin út í veður og vind? Hefur í það minnsta ekki svarað skilaboðum ennþá. Í kvöld efnum við til knattleiks. Gaman gaman.
Ég hef ekki frá meiru að segja í dag en lýsi þó yfir miklum áhyggjum af þessu!

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home