23 ágúst 2005

Að ganga menntaveginn á jafnsléttu

Krónprinsinn steig sín fyrstu skref á menntaveginum í dag. Gekk vasklega af stað og leit ekki um öxl.

Ég sat setningarathöfn með honum og frúnni í morgun í gamla skólanum mínum. Hann hefur ekki breyst mjög mikið, einstaka viðbygging hér og þar. Helst að lóðin hafi tekið breytingum. Í þá daga (sem eru í þessu tilfelli 1975-1982) þótti fullfínt fyrir okkur boltamaurana að spila fótbolta á malbikuðum velli sem hallaði í 39° til hliðar, þeas ekki á langveginn. Svo maður lærði fljótt að leika á þyngdaraflið og hlaupa beint áfram þrátt fyrir lygilegan halla; þurfti svo að afstilla sig eftir frímínútur og fara að ganga eðlilega aftur. Það er líka eitthvað bogið við okkur öll í þessum árgangi.

Ég ætla ekki alveg að missa mig í leggi og skeljar og hjalandi bæjarlæki en það er óneitanlega magnað að bera saman þessar aðstæðurnar og þær sem boltaþyrstum börnum standa til boða í dag. Vonandi að þau fái frið fyrir köllum eins og okkur sem endrum og eins stöndumst ekki freistinguna og tökum nýju sparkvellina yfir, stökkvum grátandi börnunum á flótta í krafti stærðar og aflsmuna, hlaupum móðursýkislega þangað til mjólkursýrurnar gera uppreisn, gefumst upp misbláir og þökkum guði fyrir að öll bein eru heil!

1 Comments:

Blogger Fjalar said...

Nú er komin skýring á því hvers vegna annar fótur þinn er styttri!

fimmtudagur, 22 september, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters