Af leikritun og nágrönnum
Nú styttist í það að ég muni skifa mitt fyrsta leikrit. Það mun gerast í félagi við annan mann sem ég læt vera að nefna hér. Við höfum í sjálfu sér ekki hugmynd um efni leikritsins, vitum aðeins að verkið mun spyrja krefjandi spurninga um þjóðfélagsmein, firringu og geðslag nútímamannsins, eyðingu ósonlagsins, uppgjöf náttúrunnar eða eitthvað í þeim dúr. Efni þess mun reyndar ekki skipta nokkru máli því titillinn er einhver sá magnaðasti sem settur hefur verið á leikrit og hann einn og sér mun fleyta okkur áfram. Leikritið mun heita:
Þetta er hvorki staður né stund fyrir afturbeygð fornöfn
Hvernig er hægt að láta leikrit með slíkan titil framhjá sér fara? Gagnrýnendur munu verða á einu máli. Verkið verður kallað mikilvæg og nauðsynleg tímasprengja í heim leikritunar á Íslandi. Við verðum kóngarnir. Ha! Töff!
Iron Maiden aðdáendur syngja hátt þessa dagan eftir nýliðna tónleika í Egilshöll. Bestur var þessi söngur: "6, 6, 7, the neighbour of the beast..."
Hitti hinn eina sanna Dr. Henningsen í hádeginu, fengum okkur kínverskan, (þá á ég við mat). Hann uppgötvaði það blessaður karlinn í miðri máltíð að hann á afmæli í dag. Ég borgaði að sjálfsögðu fyrir kaffið og get því stært mig af því að hafa boðið honum í afmæliskaffi - ekki satt? Hvað sem því líður, til hamingju með daginn Guðni minn.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home