21 júní 2005

"Gamlir, ljótir kallar sem syngja illa"


dylanh61
Originally uploaded by smutn.

Á meðan elsta dóttirin brunaði með glænýtt ökuskírteini um sveitir landsins, með móðir sína sér til halds og trausts í farþegasætinu og ömmu sína á hælunum á öðrum bíl (better believe it), ákvað ég að taka saman Dylan "bestoff" fyrir Halla spilafélaga minn. Það var fráleitt létt verk. Mér tókst þó að troða 30 lögum á listann en verð þó að viðurkenna að ég gæti eflaust tekið þrisvar 30 lög í viðbót. Þetta er einfaldlega allt of mikið af góðu stöffi frá einum manni. Allt litrófið rúmast í músíkinni hans, það er svo sannarlega til Dylan fyrir öll tækifæri.

Einhverntíma skilgreindi Erla mína uppáhalds tónlist svona: Þú hlustar bara á gamla, ljóta kalla sem syngja illa." Að sama skapi fannst henni Hörður bara hlusta á "sætar stelpur sem syngja vel..."

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Það væri nú áhugavert ef þú birtir listann.

fimmtudagur, 30 júní, 2005  
Blogger Smútn said...

Lögin voru víst ekki nema 28 (30 hljómaði betur) ÉG hef ekki listann fyrir framan mig en rifja nú upp eftir bestu getu í röð sem hefur enga stærri þýðingu:

1. Blind Wille McTell
2. Most of the time
3. Man in the long blac coat
4. Like a rolling stone
5. Love minus zore no limits
6. Hurricane
7. One more cup of coffee
8. Visions of Johanna
9. Mr Tambourine man
10. I want you
11. Lay lady lay
12. Senor
13. All allong the watchtower
14. You´re a big girl now
15. Love Sick
16. Tryin to get to heaven
17. Stuck inside a mobile
18. Subterranean homesick blues
19. Just like a women
20. Knockin on heavens door
21. Blowin in the wind
22. Masters of war
23. Ballad of a thin man
24. Tangled up in blue
25. Desolation row
26. Man gave names to all the animals
27. Don´t think twice
28. Make you feel my love

fimmtudagur, 07 júlí, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Eins og Biskupinn af Lax sagði í Klerkum í klípu:
"Ertu dáinn?"

föstudagur, 12 ágúst, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Mér fyndist nú ekki síðra ef Hörður birti lista yfir sætu stelpurnar. Helst með myndum.

mánudagur, 22 ágúst, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters