Beðið eftir lúrðasveit og strúðgöngu
Veðrið var svo stórfenglegt á þjóðhátíðardaginn að hugtök eins og "sumarföt" eða "loftkæling í bílnum" fengu loksins einhverja merkingu. Við höfum setið fyrir mannfjöldanum á Kópavogsbrúnni síðustu þrjú ár á "sautjándanum" og sáum ekki ástæðu til þess að breyta út af venjunni í ár.
Ég tók mynd af erfingjanum við þetta tækifæri - hann var hinn spakasti og lét ekki mannfjöldann koma sér úr jafnvægi. Einna helst að hesturinn sem dró vagninn sem bar nýstúdentinn og fjallkonuna vekti áhuga hans, en það var nú fyrst og fremst vegna þess að hann kúkaði út um allt! Þ.e.a.s. hesturinn - ekki stúdentinn...

1 Comments:
Sitja fyrir skrúðgöngunni á brúnni ... einmitt. Ég þekki þessa aðferð, að gera bara hefð úr slugsinu, geta aldrei drullað sér á réttum tíma í gönguna og þurfa í staðinn að keyra eins og brjálæðingur í veg fyrir hana til að barnið sjái amk. í hornið á einum fána eða lúðri, eða lúðurinn á einu horni eða þannig.
Skrifa ummæli
<< Home