Seljalandsbræður sameinaðir á ný
Í tilefni af því að stærsti minnsti bróðir í heimi er á leiðinni til landsins þá er vel við hæfi að sækja þessa mynd úr albúminu. Þarna erum við bræðurnir að skola af okkur ferðarykið í Seljalandsfossi sumarið 2003, að mig minnir. Vorum við þá búnir að fara ránshendi um Þórsmörk og láta ófriðlega við norska túrista sem vörðust vasklega en urðu þó að láta í minni pokann fyrir rest.


0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home