Skakkur, skakkari, skakklappi

Í dag á Erlan mín afmæli og hefur því enn einu sinni náð mér í aldri. Þetta tekst henni ár eftir ár og kemur mér sífellt á óvart. Til hamingju með það elsku keeeellingin mín.
Í gær, sunnudag, vorum við viðstödd skírn í Kebbblavík. Adda og Fjólusonur hlaut nafnið Vilhjálmur Svanberg og er þar af leiðandi alnafni afa síns. Fínt. Við þurfum fleiri svoleiðis!
Fékk það staðfest af fulltrúum heilbrigðisstétta landsins (öðru sinni) að ég er stórskrýtinn, þó það hafi nú verið lýðum ljóst all-lengi. Fyrra skiptið var dapurlegra, óneitanlega. Þá fór ég, samkvæmt samningum Sinfó við MT-sjúkraþjálfun, og lét kíkja á mig, mæla þol og blóðþrýsting og þess háttar. Taldi það vera formsatriði að hlaupa aðeins á færibandi og rétta úr bakinu og taka svo við hrósi um gott líkamlegt form og glæsta líkamsbyggingu hins gríska guðs. En, ég sem kom alheill á staðinn fór 30% öryrki út. Dómurinn féll, hægri löppinn á mér er líkast til 1/2-1 cm styttri en sú vinstri og því hef ég þróað með mér frekar ógæfulega útskeifu á hægri fæti, sem er jú viðleitni hennar til þess að rétta skrokkinn af.
Í læknisskoðun í morgun var þessi dómur staðfestur: það er eitthvað bogið við mig. Ég þarf því að fá einhverskonar göngugreiningu og láta tjakka mig upp hægra megin. Ég get að sjálfsögðu notað þetta sem friðþægingu... hugsa sér, hvað ég hefði orðið rosalegur góður í fótbolta ef ég hefði ekki fæðst svona bæklaður!
Eitt í viðbót. Samkvæmt læknisráði á ég ekki að rápa mikið í búðir og standa upp á endann á meðan konan mín þreifar á pjötlum á herðatrjám... fátt er svo með öllu illt!

3 Comments:
Þessi gaur sannar að maður getur verið hvortveggja krypplingur og fyllibytta og samt skarað framúr í fótbolta. Þú hefur því enga afsökun.
Til hamingju annars með frúna.
Takk fyrir það.
Ég get sem sagt leyft mér að vera mun meira slompaður öllu jöfnu!
Mér fannst þú alltaf óþægilega skakkur í vinnunni í denn.
Skrifa ummæli
<< Home