07 september 2005

Sundurlaust hjal um biblíulestur, hamingju og dægurmenningu!

Bíblíuleshringur Varríusar er magnað fyrirbæri og er honum hér með árnað heilla með framtakið sem er skemmtilegt, fræðandi og tímabært. Þykist maður eitthvað vita um eitthvað ef maður hefur ekki lesið hina helgu bók? Ég mun fylgjast spenntur með!

Almennt þykir það ekki til siðs að kvarta og kveina mikið. Svoleiðis kallar voru kallaðir væluskjóður í mínu ungdæmi. Ég verð þó að minnast á hinar ómanneskjulegu aðstæður sem oss eru búnar hér á melunum. Hitasveiflur á skrifstofunni eru svo tíðar og svo miklar að auðtrúa vesalingur gæti farið héðan út handviss um að nú væri breytingarskeiðið hafið. Í morgun voru -3° á skrifstofunni en núna á ég allt eins von á því að eitthvert torkennilegt hitabeltisdýr smjúgi framhjá mér þar sem ég sit á hlýrabolnum með sokkana bundna saman þvert yfir ennið svo svitinn byrgi mér ekki sýn...

En í samhengi hlutanna (já alltaf skal maður skoða samhengið) eru þrautir mínar æði stutt frá væluskjóðu-"mentalítetinu". Athyglisverð frétt í gær um samanburðarrannsóknir á hamingju bresku þjóðarinnar í dag og á tímum kreppunnar miklu. Þá virðist sem menn hafi bara haft það bærilegt miðað við barlóminn í dag. Er velferðin að koma okkur í gröfina? Þó er hollt að rifja upp níð sálfræðinganna um félagsfræðingana og rannsóknaraðferðir þeirra. Félagsfræðingurinn vildi gera rannsókn á hamingju. Hann gekk því um og spurði: Ertu hamingjusamur? Ef viðkomandi svaraði: Já, þá merkti hann skilmerkilega við í Já-reitnum á klemmuspjaldinu sínu. Hann ómakaði sig hins vegar engan vegin við það að skilgreina nokkuð frekar í hverju hamingja væri fólgin. Það virðist þó ekki vera raunin með þessa rannsókn? Tek það fram að ég þekki hvorki á henni haus né sporð umfram það sem kemur fram í blaðinu. Þar segir þó skýrum stöfum að sjálfsmorðstíðni atvinnulausra ungmenna sé 40% hærri í dag en þá.

Af hverju?

Smá pæling í framhaldi af því.
Erum við að verða "amused to death"...? Stöðug krafa um að ALLTAF sé gaman, ALDREI sé dauður tími og að ALLT sé sniðugt, frábært, trendí, kúl, hipp og geðveikt. Mér líður í það minnsta stundum þannig að þess sé hálfpartinn krafist af mér af ýmiskonar fjölmiðlum sem ég les, hlusta og horfi á, og að ég sé stöðugt tilbúinn til þess að vera í takti við tískustrauma, árstíðabundna siði, (núna áttu að baka jólakökur, nú áttu að vera að versla á útsölu) núna áttu að dýrka hálfmennið og andlega dverginn Rob Schneider eða annan á líka og þar frameftir götum... úúhhhha.

Þetta var gott.

Þá er líkast til listin að velja það að slökkva, að velja að lesa ekki, velja að hlusta ekki. Útiloka óð dægurmenningar til meðalmennsku. Vera trúr sér sjálfum og sinni sannfæringu. Hætta að elta, byrja að marka sín eigin spor. Hver svo sem þau eru.

Séra Sváfnir þakkar fyrir sig.

Amen.

Ó ó ó ... lá við að ég gleymdi. Til hamingju með daginn kæri bróðir. Hörður er búinn að marka enn einn hring í sitt lífsins tré, blessaður kallinn, .. ágætur.

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Er minn að verða heimspekingur á gamals aldri?
Þakka góða kveðju.

laugardagur, 10 september, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters