21 september 2005

Skýjafréttir - Rafvirki hverfur sporlaust


Í dag er merkisdagur. Ég hef ákveðið að snúa þessari ágætu síðu meira í átt til rannsóknarblaðamennsku af því tagi sem þekkist víða um heim. Vera óvæginn, harður en umfram allt knúinn áfram af sannleiksást. Fyrsta málið sem ég beini sjónum mínum að er ekkert smámál. Hér segir af rafvirkjanum Baldri sem hvarf sporlaust fyrir nokkrum árum.

Ég hef komist að því eftir öruggum heimildum að rafvirkinn Baldur var étinn af gríðarstórri pottaplöntu á Hótel Sögu árið 1997. Það er greinilegt að allir sem vissu af þessum voðaatburði hafa sammerkst um að þegja málið í hel og eftir minni bestu vitund er pottaplantan ennþá á Hótelinu og því aðeins tímaspursmál hvenær hún veldur manntjóni næst. Þetta samsæri lögreglu, hótelsins og rafiðnaðarsambandsins er skammarlegt og tími til kominn að hið sanna komi í ljós. Vissi Baldur að pottaplantan, sem á sínum tíma var flutt inn frá Suður-Ameríku, væri hættuleg mönnum? Hver flutti plöntuna inn og hvar var yfirdýralæknir? Hvers vegna er pottaplantan höfð frammi á einu stærsta hóteli landsins? Og að lokum. Af hverju ná veggir almenningsklósetta aldrei alveg niður á gólf og alveg upp í loft?

Mál Baldurs verður áfram á dagskrá Skýjafrétta næstu daga. Leitað verður svara við fyrrgreindum spurningum.

Fylgist með.

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters