Eiginlega ekki hægt?!?
Hér er mynd af okkur Halla í góðum fíling í sumarbústað síðustu helgi þar sem við vorum við æfingar ásamt Didda og Þóri. Athugið að fyrsögnin kemur þessari mynd ekkert við... Það snarkar í arninum og hann varpar skemmtilegri birtu í baðstofuna. Þetta var ansi gaman og við urðum ansi betri.En...
...eftir því sem árin líða og árhringjunum fjölgar á enninu á mér verður mér stöðugt meira í nöp við ákveðinn þátt samskipta, þjónustu eða viðskipta. Hér á ég við svokölluð grá svæði eða það í ferlinu sem er óljóst; gengur eiginlega ekki en er samt ekki alveg útilokað en ekki alveg öruggt samt?!?
Síðast í gær þurfti ég nauðsynlega að hafa uppi á ákveðnum aðila í stóru þjónustufyrirtæki sem gefur sig út fyrir að vera fyrir mig og mína. Klukkan var ekki nema rétt rúmlega hálf-níu að morgni og ég ákvað að prófa að hringja til þess að sjá hvort opið væri á þessum tíma.
Beið skamma stund og fékk svar.
Ég óska eftir því að fá að ræða við ákveðinn starfsmann og mér er því umsvifalaust gefið samband, en þar mátti ég dúsa á bið þar til slitnaði. Þennan leik endurtók ég þrisvar en í fjórða sinn rek ég raunir mínar á símaborðinu og fæ þá það skilningsríka svar að “þær taki nú eiginlega ekki símann fyrir en rúmlega níu”... (tilv. lýkur)
Nei!
Annað hvort taka þær símann eða ekki. Hvort er það?
Svo er það tilkynningaskyldan. Tilkynning til barfarenda:
Sváfnir og Halli á Hressó í kvöld frá klukkan 10 – 01
Menn Ársins í öllu sínu veldi á Café Aroma á morgun laugardag, klukkan 00- 03.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home