30 janúar 2008

Heima í dag

Fegðar sitja heima í dag. Sá yngri hóstar og lætur sér leiðast. Sá eldri reynir að vinna úr fjarlægð. Nýja vinnan er stórskemmtileg, en maður þarf sko aldeilis að vera duglegur get ég sagt ykkur. Skemmitlegt að hrærast í þessum heimi. Merkilegt hverju fáeinir stafir á blaði geta komið til leiðar. Upp úr sakleysislegum handritum spretta sýningar, fullar af lífi, lausnum, tækni og tilfinningum. Orðin má segja á ótal vegu og kúvenda þannig merkingunni. Sat samlestur í gær á leikriti sem heitir Gítarleikararnir. Það var einstakt að heyra þungavigtarleikara eins og Jóhann Sigurðarson og Hönnu Maríu Karlsdóttur leika sér með textann, finna honum stöðugt nýjan farveg og prófa sig áfram. Mark my words... þeta verður frábær sýning!Var bókstaflega búinn að gleyma því hvað ég þrífst vel í leikhúsi.

3 Comments:

Blogger Bjarney Halldórsdóttir said...

Nú ertu farin að vinna í leikhúsi? Hvað ertu að bardúsa þar?

föstudagur, 01 febrúar, 2008  
Blogger Smútn said...

Jú mín kæra, orðinn markaðsstjóri Borgarleikhússins...

hó hó hó, eins og góður maður í rauðum fötum segir stundum.

föstudagur, 01 febrúar, 2008  
Blogger BbulgroZ said...

Leikhúsið er yndislegur staður til að vera á ef að komið er fram við starfsfólkið sem fólk en ekki staði eða dýr.

laugardagur, 02 febrúar, 2008  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters