hugsað á íslensku
Ef það er rétt eins og kemur fram í Viðskiptablaðinu í dag að til standi að keppa um besta veitingamann landsins, þá vona ég að sá sem sigri keppnina fari vel með hann. Spurning hvort að þetta sé farandveitingamaður? Það fylgdi hins vegar ekki sögunni í hverju er keppt?
Helgin framundan og það verður nóg að gera hjá Mönnun ársins... í kvöld föstudag á Hressingarskálanum, á morgun í Sýrlandi að taka upp Júróvisjónlagið hans Tóta... (já við erum á meðal þátttakenda í laugardagslögunum, nánar síðar um það, þetta er jú stórfrétt og ber að segja frá í löngu og ekki síst ítarlegu máli) og svo annað kvöld í Firðinum, nánar tiltekið á Café Aroma...
Allt um það hér.
...kannski að við sjáumst.

1 Comments:
Allt að gerast hjá hljómsveitinni, tilhlökkun í mínum huga..hlakka til að heyra nýja stöffið og júróvisionlagið :) Ég hef alltaf séð ykkur sem júróvisionhljómsveit, nei djók : )
Skrifa ummæli
<< Home