Svalur svalari svalastur
Það er rétt. Roger Waters og Bob Dylan eru líkast til þeir tveir tónlistarmenn sem ég hef skrifað um miklar lofrullur... en það er þó ekki hægt að horfa fram hjá því að eitt er það sem þessa ágætu menn skortir sárlega og það eru hrein og bein "kúlheit"...
Þessi ágæti maður, hins vegar, er og hefur nánast alltaf verið úber-svalur. Þeir sem nenna á svona fallegum degi að fara að þusa um skilgreiningar geta kallað það karisma, fágun, eða hvað sem þeir vilja. Í lok hvers dags þegar allir fara að sofa og stigunum er safnað saman þá er það alltaf Bowie sem var mesti töffarinn þann daginn... og þannig verður það um alla framtíð.
Hér er skemmtileg útgáfa af einu af þessum dægurlögum sem brjóta af sér nafnið og öðlast eilífa tilvist...
Njótið helgarinar

4 Comments:
Hm... heyrist þetta hin hentugasta ábreiða fyrir Menn Ársins. Enda gott að hafa ábreiðu þegar svalt er.
Mæltu manna heillastur... það mundi hlýja verulega.
Ef minnið svíkur mig ekki þá var þetta sú ábreiða sem hvað mest samstaða var um innan hljómsveitarinnar Kol, öllum fannst hún svöl, þar á eftir kom Göngum yfir brúna.
sammála.. .bowie er flottastur. Hann var líka mjög fyndinn í þáttunum Extras
Skrifa ummæli
<< Home