Að borga "bara vexti"
Auglýsing dagsins:
Kaupþing býðst af rausnarskap sínum til þess að hlífa þeim sem taka 80% húsnæðislán við því að borga af höfuðstólnum og borga "bara vexti í 5 ár".
Akkúrat.
Það er einmitt fjandans höfuðstóllinn sem við viljum borga niður. Daginn sem Kaupþing auglýsir að ég þurfi ekki að borga vexti í 5 ár og geti raunverulega greitt lánið niður, þá skal ég vera fremstur í röð nýrra viðskiptavina og klæðast eins og dragdrottning í skautahlaupi sé þess óskað.
Á meðan til er fólk sem telur að það sé að græða á því að fá að borga "bara vexti" halda bankarnir áfram að bjóða neytendum svona þvælu. Það vita það allir sem vilja að þessi aðferð þýðir einfaldlega að þú borgar meira, þú borgar bara hægar.
Svei.
Svabbi reiður.

3 Comments:
Já þeir eru slóttugir þarna hjá bankanum maður minn uss suss ssusss!!
Fyrstu 5 árin borgar þú hvort eð er bara vexti svo ég sé ekki í hverju tilboðið er falið.
Hugsaði þetta nákvæmlega sama þegar þessi auglýsing bar fyrir mín augu. Þvílík vitleysa.
Skrifa ummæli
<< Home