Skrautleg spilamennska í Popplandi
Það var sérstaklega gaman að mæta í Útvarpshúsið í Efstaleiti og spila þar í beinni útsendingu á föstudaginn. Mér leið þó ekkert sérlega notalega þegar klukkan sló þrjár mínútur yfir þrjú og við höfðum ekki náð neinu sánd-tékki að viti. Enda fór þetta ögn skrautlega af stað en í það heila tekið held ég að maður geti haldið andliti. Það sem ekki kom fram var hið stórkostlega innlegg Guðmundar Hafsteinssonar trompetleikara. Hann ásamt fleira góðu fólki hafði lofað okkur stuðningi, en hann blæs einmitt sólóið í "Þögnin heyrir allt".
Við vissum að hann yrði seinn í stúdíóið, þurfti að kenna þennan dag og var frekar tímabundinn. Það bólaði hins vegar ekkert á Guðmundi þegar lokalagið var kynnt og hljómsveitin renndi sér af stað og þegjandi samkomulag um að gera það án trompetsins. Þegar lagið er um það bil hálfnað verð ég var fyrir hreyfingu fyrir aftan mig. Það reynist vera Gummi, pollrólegur rennir hann upp töskunni, dregur fram trompetinn, smellir munnstykkinu í hljóðfærið og lítur frekar spyrjandi á mig. Nota bene, þá erum ca. 3 taktar fram að sólói. -2-3-4... 1 - 2 -3 -4...Með höfuðhreyfingu benti ég honum á að koma og puðra í átt að sömgmíkrafóninum, sem hann og gerði með miklum bravúr. Það hefði sem sagt ekki mátt skeika sekúndu; ef hann hefði átt í minnsta basli með að leggja bílnum fyrir utan, þurft að bíða í anddyrinu augnablikinu lengur, þá hefði hann sem sagt misst af þessu.
Töffaragangurinn var svo yfirþyrmandi að við bókstaflega féllum á kné þegar við höfðum verið teknir úr beinni. Skemmtilegast var að fylgjast með svipnum á Páli tæknimanni sem varð svo skemmtilega rasandi/hissa/tómur/undarlegur í framan þegar hann heyrði allt í einu trompet á fullu blasti í stúdíóinu sínu. Þess má geta að Gummi var utan hans sjónlínu. Frábær endir á vel heppnuðu giggi. Strengjaleikararnir voru gríðarlega hamingjusamir með þetta og hver veit nema að þeir verði tilbúnir í frekara samstarf.
Hver veit, kannski fá þeir eitthvað borgað næst!

4 Comments:
Þetta er eitthvað sem gerist aðeins i "bestu" Hollywoodmyndum. Þetta fær mann til að trúa á þessar góðu myndir. :-)
Mjög gaman að heyra þetta, til hamingju með þetta skref. Er eitthvvað að frétta af útgáfumálum? Er orðinn spenntur að vita hvernig þetta fer ofan í Íslendinga.
Já eins og ég sagði nú við söngvarann að ég hélt að Halli væri að leika þetta á hljómborðið (trompetsólóið) því ég hafði aldrei heyrt Guðmund kynntan til leiks þegar nafnakall fór fram í útsendingunni, ansi skenntlett (eins og Hemmi Gunn hefði orðað það)
En Erpur spyr um útgáfu, ég spyr um myndbandið, hvenær fer það að sjást??
Já, þessi frammistaða Guðmundar er nefnd: alkul, mjög svalt. Diddi.
Skrifa ummæli
<< Home