Rétt skal vera rétt
Það er eitthvað sorglegt við það að lesa "besservissíska" grein Andrésar Magnússonar um skilgreiningu á því hvað sé borgarstyrjöld og hvað sé það ekki. Að hans mati fer leiðarahöfundar Mogga með rangt mál þegar hann segir að í Írak geysi borgarastyrjöld. Þrennt þurfi til; 1) stríð með borgurum landsins og markmið stríðsaðila þarf að vera að ná völdum í ríkinu, 2) ljóst þurfi að vera hverjir séu aðilar að átökunum og hverjir séu leiðtogar þeirra og 3) markmiðið þarf að vera að ná völdum í ríkinu.
Honum hefur verið bent á það að eftirtaldir miðlar: NBC News, MSNBC, Los Angeles Times, Newsweek og New York Times, fjalli allir um málið með orðanotkuninni "Civil War". Spurt er á kratabloggi hvort þess sé að vænta að Andrés fari að hafa vit fyrir fréttaritstjórum þessara miðla?
Nei, óöld skal það vera. Fínt að hafa það á hreinu í kúlnaregninu og sundurtættum líkamsleifum ættingja sinna að dauði þeirra komi ekki til vegna borgarastyrjaldar heldur vegna óaldar,... og það er að sjálfsögðu allt annað.
Einmitt, höldum okkur við aðalatriðin!

2 Comments:
Vel mælt. Skil ekki þegar svona snillingar eins og Andrés þurfa að stíga fram til að taka þátt í pólitískri refskák republikana
http://www.youtube.com/watch?v=RiivjqoRcCk
Skrifa ummæli
<< Home