Færsla, færslunnar vegna
Braut spegil með glæsibrag í dag og það engan trítilsgægjuspegil fyrir konur (eða menn) í förðunarhugleiðingum. Ætli það felist einhver margföldunaráhrif í stærðinni eða eru þessu standard 7 ár fastur dómur burtséð frá umfangi og massa brotsins?
Gæti orðið skemmtileg jafna: hæð x breidd.. deilt í þyngd þess sem braut spegilinn,.. sinnum stuðulinn 7.
Er á leið til Ljubljana í Slóveníu á föstudaginn með spúsu minni. Grænir drekar vakta borgina. Vona samt að það sé ekki mikið af speglum.
Fyrirgefið þessa færslu. Var bara orðinn leiður á svíninu.
Farinn að hlusta á Rauða baróninn aka, Halla, að spila á Airwaves.
Góðar stundir

5 Comments:
Færslur, færslunnar vegna eru oft betri en engin færsla. Byltingarsinninn hann bróðir þinn (Erpur) mætti taka þessi orð til sín og aðeins velta þeim fyrir sér og láta svo af skrifletinni og búa til eina færslu, t.d. um videogerðina í Frakklandi.
Sammála bbulgroz ... þessi færsla segir meira heldur en engin færsla ... og reyndar meira en margar færslur sem ég hef lesið á ýmsum bloggsíðum gegnum tíðina ...
[öfundsýkishamur]Ekki að spyrja að þessu djettsetti![/öfundsýkishamur]
Góða ferð!
Margföldunaráhrifin af speglastærðinni eru gríðarleg, við erum að tala um veldisaukningu fyrir hvern fersentimeter upp á eina 4 Ef gert er ráð fyrir að venjulegur spegill sé 80x50 cm. Þú sérð ekki til sólar hér eftir.
Ég virðist vera búinn að vera samkvæmt þessum útreikningum. En hey.. þá býr maður bara til nýjan stuðul og er seif.
Skrifa ummæli
<< Home