Lög unga fólksins

Útvarpsnetsíðan pandora var á dögunum kosin ein sú svalasta í henni veröld af tímaritinu Time. Sjálfur hef ég skráð mig inn sem notanda og hef síðustu tvo daga sniðið mér stakk eftir smekk.
Apparatið virkar þannig að notandi skráir inn nöfn hljómsveita eða tónlistarmanna sem honum eru að skapi og þá opnast askjan. Auk þess að spila músík með þeim listamönnum sem notandinn hefur sjálfur óskað eftir stingur hún pandóra litla að notanda einu og einu lagi með öðrum sem hana grunar að notandi kunni að hafa gaman af.
Í hverju lagi hefur notandinn möguleikann á að velja hvort honum líki eða líki ekki og þannig verður smám saman til nákvæmari prófíll. Í augnablikinu er pandóra litla að reyna að kortleggja minn smekk en virðist ekki alveg vita í hvora áttina hún á að fara og spilar jöfnum höndum þjóðlagagaul og breskt síðpönk.
Ég sé að ýmsir fídusar eru í boði en hef ekki náð að gaumgæfa það.
Til þess að gerast notandiþarf að skrá inn zip-code en það getur í raun verið hvað sem er. Sjálfur notaði ég eitthvert póstnúmer sem ég fann í New York...10021 held ég að það hafi verið.
Skoðið þetta og skemmtið ykkur.

2 Comments:
Pandora er sniðugt fyrirbæri. Hér eru líka nokkrir svipaðir:
last.fm
shoutcast.com
radioblogclub.com
Sniðugt
Skrifa ummæli
<< Home