02 júní 2006

Talandi um tvífara



Held að mér hafi loksins tekist að finna hinn fullkomna tvífara Arnars. Hver man eki eftir honum Scooter úr Prúðleikurunum? Jákvæðu hjálparhellunni sem missti aldrei sjónar á lífsgleðinni.

Auk þess að vera sláandi líkir eru þeir báðir harðduglegir og sívinnandi bak við tjöldin, miklir hæfileikamenn sem vilja ekki trana sér í sviðsljósið en eiga það til að blómstra þegar þeir láta það eftir sér að deila talentum sínum með heiminum.

Scooter var aldrei langt undan þegar froskurinn Kermit þurfti á hjálp að halda og mig grunar að því sé eins farið með hann Arnar. Þegar Bjarni óperustjóri, eða aðrir samverkamenn, eru í lægð er ekki ósennilegt að hið hýra og bjarta bros Arnars og jafnvel viskítár á tyllidögum hjálpi til. Heimurinn þarf meira af snillingum eins og þeim, tvíförunum dagsfarsprúðu, Scooter og Arnari.

Góða helgi.

2 Comments:

Blogger BbulgroZ said...

Ja mikill er andskotinn : )

Mér líður alveg eins og Erpi sem sá tvífara sinn um daginn á knattspyrnuleik, maður veit vart í hvorn fótinn maður skal stíga. Við erum ekki bara sláandi líkir heldur erum við nánst eins í háttum og gjörðum.

föstudagur, 02 júní, 2006  
Blogger Bjarney Halldórsdóttir said...

hí hí þeir eru alveg eins!

þriðjudagur, 06 júní, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters