10 maí 2006

Búrið opnað og fyrsta lagi sleppt frjálsu

Þar kom að því. Fyrr í morgun lauk Halli við hljóðgerð á laginu "Þögnin heyrir allt". Fyrsta fullgerða lagi Manna Ársins af væntanlegum breiðgeisladiski... Í framhaldinu skutlaði ég eintaki á Rás2. Nú er að halla sér aftur og bíða eftir heimsfrægð. Ef hún ekki kemur þá á maður alltaf séns á að fá sjómannadagsballið á Grundarfirði aftur!

Eilítið undarleg tilfinning áð ahfenda þetta. Láta frá sér hugarsmíð sem læddist í kollinn á mér hlýja sumarnótt árið 2004 á leið heim af Catalínu. Nú væri gaman að koma hljóðbút á vefinn. Bloggerinn leyfir víst ekki slíkt.

Nú held ég heim að raka moldina í bakgarðinum. Þar mun rísa æfingasvæði Eyórþórs Andra. Svæðið verður hannað með æfingu aukaspyrna í huga.

Kommonn. Eitthvað verður maður að gera.

Lífeyrissjóðurinn er ekki mjög traustur

4 Comments:

Blogger Pooran said...

Nú er ég orðinn spenntur... lát oss almúgann heyra tóndæmi, por favour?!

miðvikudagur, 10 maí, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Við setjum þetta bara inná www.einmitt.is/mennarsins Sváfnir ...
Tóti bassi

fimmtudagur, 11 maí, 2006  
Blogger BbulgroZ said...

Jamm leifa okkur að heyra og við pöpullinn boðum svo fagnaðarerindið í framhaldi.

fimmtudagur, 11 maí, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Mér væri það ljúft og skylt að hýsa fyrir þig hljoðbútinn, stúfurinn minn.

föstudagur, 12 maí, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters