06 mars 2006

Snýr kóngurinn aftur?


Það er aðeins eitt sem skiptir máli í dag og það er ekki afsögn ráðherra, fuglaflensa, skopteikningar eða óskarinn. Ó nei. Spurningin sem brennur á allra vörum núna er að sjálfsögðu sú hvort að Arnar muni snúa aftur á leikvanginn í kvöld eftir langa fjarveru venga meiðsla. Ég get vart á heilum mér tekið af eftirvæntingu... fáum við að njóta limaburðar hans, útsjónarsemi og fádæma leikgleði í kvöld eður ei? ? ?

PS:
Svara klukkinu þegar ég er búinn að fá svar við þessari áleitnu spurningu.

4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Strauið helvítið strax í fyrstu snertingu! Vil að hann haldi áfram að blogga af sama krafti og eftir meiðslin.

mánudagur, 06 mars, 2006  
Blogger Refsarinn said...

Ég geng í málið.

mánudagur, 06 mars, 2006  
Blogger BbulgroZ said...

Þetta er náttúrulega alveg bjútifúl...ég vona að ég komist með tærnar þar sem ég hafði hælana þegar atvikið hræðilega átti sér stað í byrjun árs.

mánudagur, 06 mars, 2006  
Blogger Fjalar said...

Ég færi varlega í að nota líkingar af þessu tagi, Arnies.
Vandamálið hófst einmitt þegar þú komst með tærnar þar sem ég hafði ristina og þá fór liðbandið.

miðvikudagur, 08 mars, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters