29 janúar 2006

It was twenty years ago today...


Mér finnst tíminn vera merkilegt fyrirbæri.
Í ofvirkni sinni og meðfæddum athyglisbresti, getur helvítið aldrei verið kjur eitt augnablik og tekur ekki tillit til neins. Gefur enga sénsa.

Upplifði skemmtilega og löngu tímabæra endurfundi í gærkvöldi og fékk sjokk yfir þessum pælingum í framhaldinu. Byrjum á byrjuninni.Maður nokkur heitir Finnur og er fisksali í Kópavogi. Sé hann af og til á fótboltaleikjum HK eða þegar ég kaupi af honum ýsuflök. Við spjöllum um daginn og veginn enda gamlir kunningjar. En Finnur var ekki alltaf Finnur fisksali, ónei. Í eina tíð var hann Finnur frík og þá var öldin önnur. Við spiluðum saman í hljómsveitum (held mér sé alveg óhætt að nota fleirtölu) fyrir tuttugu árum.

Finnur varð 39 ára á dögunum og í nostursamlegri viðleitni sinn til þess að gera hlutina alltaf aðeins öðruvísi hélst hann upp á daginn sem fertugur væri. Hann bauð til teitis í gærkvöldi og safnaði saman m.a. meðlimum úr gömlum unglingahljómsveitum. Þvílíkir endurfundir. Þarna voru saman komnir menn sem höfðu hvorki sést né heyrst í lengri tíma en ég kæri mig um að rifja upp. Fyrir innvígða og innmúraða þá get ég nefnt Gógó, bassaleikarann knáa úr Hrauntungunni, Pétur Jónsson, trommara/gítarleikara, Týra, bróðir Kolla og fleiri góðir. (Fyrir þá sem þekkja hvorki haus né sporð á mönnum þessum, töff sjitt). Við komum þarna saman ég og Magnús Árni og nutum góðra veiga og rifjuðum upp frægðardrauma, sigra og vonbrigði.

Þess má geta að fyrr um daginn fékk ég SMS skilaboð frá afmælisbarninu sem hljómuðu eitthvað á þá leið að hann væri með batteríslausan síma og þyrfti nauðsynlega á aðstoð minni að halda, hvort ég gæti hringt í ákveðið númer sem ég guðsblessunarlega man ekki lengur. Mér fannst rétt að svara kallinu og sló strax á þráðinn. Eftir augnablik segir rödd hinum megin á línunni: Vertu velkominn á homaspjall rauða torgsins... o.s.frv.
Það lét nærri að 80% þeirra karlmanna sem voru saman komnir þetta kvöld höfðu slegið á þráðinn á hommatorgið. Gaman og til marks um dásamlegar hugmyndir fisksalans.

Ákveðið var að hittsast með hækkandi sól og rifja upp gömul meistaraverk. Fylgist með!

5 Comments:

Blogger Refsarinn said...

Hitti Magnús Árna í annari afmælisveislu seinna um kvöldið og lærði þar um þessa endurfundi. Kallinn var ekki alveg komin niður á jörðina síndis mér. Er Gógó enn þá á Willis jeppanum?

sunnudagur, 29 janúar, 2006  
Blogger BbulgroZ said...

Þetta er spennandi og verður gaman að fylgjast með. Gaman verður að heyra hvort um eitthvert come back verði að ræða (með hækkandi sól) á hinni goðsagnakenndu hljómsveit Bandi nútímans.

sunnudagur, 29 janúar, 2006  
Blogger Varríus said...

Við lestur bloggfærslurnar vöknuðu grunsemdir.

Hljómsveitarnafn eins og Band nútímans gleymist ekki svo glatt. Mögulega versta hljómsveitarnafn sem ég hef heyrt, svo vont að það er (næstum) gott.

Finnur fisksali hljómar enn kunnuglegar. Getur verið...?

Finnur Frík hef ég aldrei heyrt áður, en vissulega trúlegt ef grunur minn reynist réttur.

Símahrekkurinn tekur af öll tvímæli.

Hér er verið að lýsa Finni frænda mínum (systkinasynir og - stundum - fóstbræður).

Heimurinn lítill, ekki satt? Litlu stærri en Kópavogurinn.

þriðjudagur, 31 janúar, 2006  
Blogger Smútn said...

Ja hvur andskotinn.
Óneitanlega skreppur hann töluvert saman við þetta blessaður heimurinn. Band Nútímans er að öllum líkindum eitt af verstu hljómsveitarnöfnum allra tíma. Kannski að "Hin rósfingraða morgungyðja" sé verra. En undir því nafni skráði Hörður mitt þáverandi band í Músíktilraunir ´82. Fyrst hétum við Orion - veit ekki hvað var að því.

En ég verð að spyrja: hvers vegna voruð þið aðeins fóstbræður stundum?

miðvikudagur, 01 febrúar, 2006  
Blogger Varríus said...

Ekkert merkilegt við það, bara fjarlægðin. Ég á Húsavík, Finnur í Kópavoginum. Aldrei borið skugga á okkar vináttu.

Dvaldist reyndar gjarnan hjá honum í Hlaðbrekkunni þegar ég fékk bæjarleyfi og eru af þeim heimsóknum til margar sögur og góðar, en vart birtanlegar hér. Auk þess sem þær væru væntanlega hálfu betri ef fisksalinn knái segði þær, enda sögumaður í sérflokki.

miðvikudagur, 01 febrúar, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters