Sjónvarpsrýni (en engar játningar )
Sá mæti maður Immanúel Kant sagði eitt sinn að það tvennt sem væri honum stöðugt tilefni undrunar væri annars vegar stjörnuhimininn fyrir ofan hann og siðalögmálið sem bærðist innra með honum. Hvað skildi hann segja í dag ef hann hefði séð þáttinn Partý101 á SIRKUS í gærkvöldi?
Mér er til efs að ég fái nokkurn tíma (og þá meina ég um alla eilífð) skilið hvað vakir fyrir þeim sem hefur fengið þá flugu í höfuðið að ljósastofubronslituð hnakkamella gæti dregið eitthvað athyglisvert úr skúmaskotum skemmtanalífs sæta, unga, fólksins annað en: Hey, eruðið ekki alveg rosalega hress?"
Fjalar hittir vafalaust naglann á höfuðið þegar hann lýsir því yfir að héðan í frá sé Sylvía Nótt óþörf. Hin raunverulega útgáfa hafi skilið hana eftir í reyk hvað varðar innihaldsleysi og sjálfhverfu.
Nema...
(og þetta er spennandi)
..að þessi unga stúlka sé einfaldlega að gera stólpagrín að okkur öllum og innan skamms felli hún grímuna; viðurkenni að allt hafi þetta verið sprell í þágu félagsvísinda og skömmi síðar dragi hún helstu niðurstöður sínar saman í athyglisverðri grein í Social-Science-Weekly?
Hver veit?

7 Comments:
Þið bræður hafið nú auglýst þennan þátt svo rækilega að í kvöld sleppi ég House en renni í stað yfir þennan mjög svo spennandi þátt.
Búinn að kíkja, algjör skvísa, mætti lesa upp úr lögbirtingarblaðinu mín vegna. Ég horfi pottþétt á næsta þátt í góðu stuði.
Ég var að horfa á þáttinn og hallast ég sterklega að kenningu Sváfnis um að hún sé vísindamaður og skrifi í Social-Science-Weekly : )
Eriddekki eins og með "Húsið á sléttunni" sælla minninga. Allir kvörtuðu og kveinuðu yfir þeim þætti (og ég fékk aldrei almennilega frið til að grenja með þáttunum) en aldrei var heldur sleppt úr þætti...
Enn einu sinni held ég að Fransína hafi hitt naglann á höfuðið.
1. Ég tók það sérstaklega fram að þátturinn ætti eftir að njóta mikilla vinsælda.
2. Varðandi það að njóta þáttarins, Þórhallur: Munurinn á okkur og "Refsaranum" er að við hugsum með heilanum þegar við horfum á þáttinn...
3. en...auk þess vil ég benda ykkur á að skoða útlit stúlkunnar, burtséð frá hári, háralit, farða og fötum. Þá kemur nefnilega í ljós að hún er heldur ófríð og óheppin í útliti. Svona klámmyndameikupp er bara svo helvíti auðvelt, við karlarnir hættum að hugsa með hausnum og allar stelpurnar virka alvega rosalega flottar... eða "fokking fallegar" eins og BB komst svo vel að orði.
Alltof margar þeirra eru síðan "ég verð að naga af mér handlegginn til að sleppa" týpur þegar dagur rennur og meiköppið er meira og minna komið á koddann.
Tók satt best að segja ekki eftir meikinu, er líklega með E skálar, er hún annars ekki dökkhærð?
Skrifa ummæli
<< Home