04 janúar 2006

Sjónvarpsrýni og játningar

Ég setti það ofarlega á óskalista minn fyrir nýtt ár að ég mundi gjarnan vilja temja mér þann viljastyrk að horfa minna á Skjá-einn. Því er nefnilega þannig farið að aparatið í horni stofu minnar virkar róandi og sefandi á stundum eftir langa vinudaga og telur mér trú um að í ástundun þess sé fólgin friður og hvíld eftir eril dagsins. Þegar uppi er staðið er það svo yfirleitt tímaeyðsla sem skilar manni álíka þreyttum og stressuðum í háttinn og það allt of seint. Frekar en að vera eins og einn af þessum Land-rover gæjum sem segja með yfirlætissvip áður en þeir sveifla treflinum yfir öxlina: Ég horfi nú bara ekkert á sjónvarp, viðurkenni ég fúslega að ég glápi á sjónvarp. Ég er satt best að segja stórneytandi á sjónvarp og hef lagt á mig að andvökur fyrir vinnudag til þess að horfa á The Newlyweds,... aftur! En ég geri mér grein fyrir vandanum.

Þó verð ég að segja mér til málsbóta að á Skjá-einum leynist einn þáttur sem ég skammast mín síst fyrir að fylgjast spenntur með. Sá heitir Rock-star INXS, og fjallar um þá hálf-glötuðu “eitís” hljómsveit INXS og leit hennar að nýjum söngvara. Það er ágæt skemmtun að fylgjast með keppendum troða upp með hina og þessa standarda úr rokksögunni og heyra hvernig til tekst. Tvennt er þó óskemmtilegt við þáttinn, annars vegar er það spjátrungslegur náungi með allt of “symmitrískar” augabrýr fyrri minn smekk, að nafni David Navarro, veit ekki á honum frekari deili, sem hefur verið fenginn hljómsveitarmeðlimum til halds og trausts til að “kommenta” á flutning keppenda. Þeir hafa kannski ekki þótt nægilegu unggæðingslegir og kynæsandi í hljómsveitinni og því hefur þessum tattóveraða slangurpoka verið skellt þarna inn. Svo, hins vegar, virkar það alltaf hálf-kjánalegt þegar þeir keppendur þrír sem veljast neðstir hvert kvöld þurfa að syngja fyrir lífi sínu, því einum er alltaf vísað frá samkvæmt uppskriftinni) að þá þurfi þeir að flytja lög eftir hljómsveitina. Það fer undrunarkliður um salinn þegar INXS-arar fella dóm um hvað INXS-lag viðkomandi á að syngja,... kannski er það vegna þess að það þekkir enginn lögin þeirra? Í það minnsta geri ég að ekki. Að öðru leyti mæli ég með þáttunum og hef fundið minn uppáhaldskeppanda, hann heitir Mig Ayesa og er Ástralíumaður. Það fór einnig um bjánahrollur þegar einn keppanda fullyrti að húðlitur hans kæmi í veg fyrir frekara gengi hans. Kommon, jöstbíkosæmblakk er ekki eitthvað sem hægt er að sækja ognota ef illa gengur. Go Mig!

5 Comments:

Blogger Pooran said...

Í fyrsta lagi á ég ekki Land-Rover... ég er ekki einu sinni með bílpróf!!! En ein fíkn tekur við af annari, þó ég hafi ekki horft á sjónvarp í nærri 3 ár get ég ekki hætt að hekla, mig dreymir flókin munstur, peysur handa öllum Poodle hundum vina minna, mig langar meira að segja að klæða alþingis-húsið í fínustu Lama-ull.

Hjálp!!!

miðvikudagur, 04 janúar, 2006  
Blogger Refsarinn said...

Já þetta er frekar mikið svona úr skápnum kæri Sváfnir.

fimmtudagur, 05 janúar, 2006  
Blogger arngriv said...

Dave Navarro er hvað mest frægur fyrir að vera giftur Carmen Electra. Svo er hann gítaristi og hefur spilað með Jane's Addiction og Red Hot Chili Peppers. Bara svona til upplýsingar.

fimmtudagur, 05 janúar, 2006  
Blogger Smútn said...

Aha... takk fyrir það.
Alltaf lærir maður eitthvað nýtt.

Held og lykke med benet.
s

fimmtudagur, 05 janúar, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Sammála. Eini gerviveruleikaþátturinn sem ég hef gaman af að horfa á. Ég er reyndar hrifnastur af annarri stúlkunni sem er eftir. Man ekki hvað hún heitir en það er sú ljóshærðari.
Svo setur hinn afar pirrandi JD nú svip sinn á þetta líka.
INXS? Nei, ég skil dæmið ekki alveg heldur.

föstudagur, 06 janúar, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters