22 desember 2005

Enn af gömlum körlum sem syngja "illa"


Á dagskrá RÚV í gær var þáttur Martin Scorsese um Bob Dylan. Þetta var reyndar aðeins fyrri hluti en engu að síður heilir tveir tímar. Jibbí kóla, gaman gaman. Gæti helst fundið að því hversu "Talandi höfuð" voru efnisfrek á kostnað ýmissa upptaka sem ég hefði að ósekju viljað fá að fylgja aðeins lengur. Þarna mátti sjá myndbrot af tónleikum þar sem Dylan er nýbúinn að sanka að sér hljóðfæraleikurum og hefur tekið upp rafmagnsgítarinn sem sármóðgaði marga af “bókstafstrúarmönnunum” á Newport tónlistarhátíðinni sem var helguð fólkmúsík.

Í heimildarmyndinni rifjuðu margir þeirra gömlu upp kynni sín af Dylan þegar hann kom til New York, þefaði uppi músíksenuna, vakti á sér athygli og náði að lokum samningi við Columbia. Fannst ég greina örlitla biturð í ýmsum þeirra, kannski bara misskilningur. Mestur fengur var þó spjallinu við meistarann sjálfan sem virkaði ákaflega afslappaður í svörum, miðað við þau fáu myndbrot sem ég hef séð af honum við sömu aðstæður.

Ég bíð spenntur eftir seinni þættinum. Sambandi okkar Bobs gerði ég almennt bærileg skil í eldra innleggi sem liggur hér. Ég fullyrði aftur og enn að enginn önnur tónlist hreyfir við mér á sama hátt og tónlist krulluhærða gyðingsins frá Dulúð í Minnesota. Þar hafið þið það. Engin tónlist fær mig til þess að vilja semja, spila, flytja, elda og éta tónlist á sama hátt og músík Dylans.

Oh, Mama, can this really be the end,
To be stuck inside of Mobile
With the Memphis blues again.

5 Comments:

Blogger Refsarinn said...

Falleg og innblásin frásögn kæri frændi en ég held ég verði að vera sammála henni Erlu þinni í þessum málum.

fimmtudagur, 22 desember, 2005  
Blogger Pooran said...

Í upphafi skapaði Dylan himinn og jörð. Jörðin var þá auð og tóm, og myrkur grúfði yfir djúpinu, og andi Dylan sveif yfir vötnum.
Dylan sagði:
Verði ljós!
Og það varð ljós.

Villitrúarmenn varist reiði Dylan!!!

Amen.

fimmtudagur, 22 desember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Ofmetinn andskoti, sammála Erlu

fimmtudagur, 22 desember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Í Fréttablaðinu í dag kemur síðan fram að enginn annar en þessi maður eigi heiðurinn að því að Zimmerman fór að semja sína eigin tónlist. Í því ljósi ætti þetta að verða enn áhugaverðara.

föstudagur, 23 desember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég búinn að borða yfir mig!!!!

fimmtudagur, 29 desember, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters