02 desember 2005

Aslan er á leiðinni

Líkast til er það í þriðja sinn á einu ári sem ævintýri C.S. Lewis um Ljónið, nornina og skápinn ratar á náttborðið hjá syni mínum. Nú styttist í að herlegheitin verði sýnd í kvikmyndahúsum bæjarins og spennan er mikil.

Ekki eru þó allir á eitt sáttir um verk Lewis og virðast fáir komast með tærnar þar sem Philip nokkur Pullman hefur hælana í gagnrýni sinni á ævintýrið um Narníu. Sakar hann Lewis um æði margt og skefur ekki utan af því. Sjálfur hefur Pullman skrifað bækur sem ég þekki ekki en hann er argasti guðleysingi og honum ofbýður trúarstefið í Narníubókunum. Hann fárast yfir rasisma bókarinnar, lífs-fjandsamlegri hugmyndafræði, kynjamismunun og það furðulegasta af öllu: ástleysi. Svo virðist hann líka sannfærður um að við kynningu myndarinnar sé sömu meðulum beitt og stuðningsmenn George W. Bush notuðu í síðustu kosningabaráttu. Ókey!

Mér hefur ávallt fundist hið táknræna í bókinni blasa við, vera algerlega augljóst. Hvað varðar meinta kynjamismunun verður að benda á að bókin er skrifuð af enskum karlmanni rétt eftir stríð, eigum við að leggja mælistiku okkar tíma og gilda á viðhorf þess tíma? Ef lesandinn skynjar einungis ástleysi eftir lestur bókarinnar þá þarf sá hinn sami líkast til að fara í hugræna stólpípu.

Í þessari grein er að finna andsvar við skoðunum Pullmans. Ef þið nennið, þá vessgú!

2 Comments:

Blogger Varríus said...

Ekki hef ég vit né skoðun á Narníubókunum, en þríleikur Pullmans His Dark Materials er stórkostlegur skáldskapur sem þú og þínir ættuð að sökkva ykkur niðurí við fyrsta tækifæri.

sunnudagur, 04 desember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Nú er ég búinn að lesa allar Narníu bækurnar og allar þrjár His Dark Materials. Pullman er ekki síðri rithöfundur en Lewis en mér finnst hann ætti nú að eyða meira púðri í sinn eigin skáldskap og minna í að 'dissa' aðra góða skáldsagnahöfunda. Hann skaðar bara eigin mannorð og auglýsir Narníu myndina og bækurnar í leiðinni. Þetta eru jú bara sögur, krakkar mínir, ekki alvöru ...

miðvikudagur, 07 desember, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters