17 nóvember 2005

Todos los Mundiales de Fútbol


Þá liggur það fyrir hverjir munu bítast á Cope del Mundo! Samstarfsmaður minn, tékkneskur, hefur ekki náð af sér aulaglottinu í allan morgun. Lái honum hver sem vill því eins og góður maður sagði er knattspyrnan "drottning íþróttanna".

Bjarni okkar Fel lét í veðri vaka í útvarpi í morgun að honum mislíkaði fyrirkomulagið. Af þeim 32 löndum sem ættu fulltrúa á mótinu væru sumar þjóðir sem ættu þangað alls ekkert erindi og það má til sanns vegar færa. En það er jú yfirlýst stefna FIFA, skilst mér, að reyna að glæða áhuga í þeim heimshlutum þar sem áhuginn er ekki mikill og fyrir vikið sitja margar sterkar þjóðir í Evrópu eftir, t.d. Danmörk, Tyrkland og einnig Evrópumeistarar Grikkja (hvort sem þeir áttu það skilið eða ekki?) á meðan lið frá Bahrein taka þátt!?! Hvað með Belgíu? Mér finnst að þeir ættu eiga fast sæti,Van der Eitthvað og félagar.

Sérlega áhugasamir um þátttakendur geta smellt sig áfram hér!...

...og borið saman við heimslistann sem er hjörna!

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters