16 nóvember 2005

Gerast veður válynd

Ég hef verið tekinn í rafræna gíslingu.

Hreint og beint kúgaður til þess að uppfæra reglulegar en ég hef gert. Maður mér nálægur sem ég hef hingað til talið í hópi vel meinandi hefur nú opinberað sig sem argasti bloggfantur. Hann hefur hótað mér því að senda mér reglulega tilboðspóst frá Flugfélagi Íslands ef ég ekki standi mig í stykkinu. (Af gefnu tilefni skal tekið fram að maðurinn hefur ekkert með fyrrgreint fyrirtæki að gera eða það með hann.)

Þessu verður að sjálfsögðu ekki unað.

Ég kaus í fyrstu að svara þessu á einfaldan en vonandi mjög áhrifaríkan hátt. Ég ætlaði í næstu þremur færslum að rekja atvik sem ég taldi fullvíst að hann óskaði ekki eftir að yrðu rifjuð upp vegna þess að þau kæmu óþægilega við hann, gerðu hann að athlægi eða svertu mannorð hans. Áttaði mig svo á því að það yrði einungis til þess að skemmta honum af því að hann hefur enga skömm! Og þar af leiðandi er ég neyddur til þess að lúta vilja hans því mér leiðist svo mikið að fá póst um flug innanlands.

En svo fór ég að hugsa. Þetta er kannski einmitt það sem ég þurfti til þess að hrista af mér slenið. Svo nú lít ég á þetta eins og uppeldismenntaður skandinavi og segi upphátt á meðan ég klappa saman lófunum: "Það vinna allir".

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

...og þar sem ekkert er í sjónvarpinu má blogga á kvöldin.

miðvikudagur, 16 nóvember, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters