24 október 2005

Fellibylir, fuglaflensa og fréttaflutningur

Ég verð að játa á mig all nokkurt skilningsleysi þegar kemur að jafnvægi í fréttaflutningi af náttúruhamförum. Dag eftir dag má lesa um áhrif Wilmu eða annarra fellibylja á íbúa Bandaríkjanna. Þegar þetta er ritað er aðalfréttin á mbl.is að kona hafi slasast lítillega þegar tré féll á húsið hennar. Það er að sjálfsögðu alvarlegt mál þegar náttúruhamfarir ógna öryggi fólks og eigum en hvers vegna er svona lítið fjallað um það að 80.000 manns séu látnir í náttúruhamförum sem skóku Pakistan, Afghanistan og fleiri lönd fyrir skemmstu. Ein milljón manna er þar á vergangi. Þegar fjöldi manna hýrðist á Superdome leikvanginum í New Orleans við skelfilegar aðstæður sem seinna reyndust þó nokkuð ýktar, voru allir fjölmiðlar undirlagðir fréttum af því. T.d. fengum við að vita hvernig gæludýrum reiddi af sem skilin höfðu verið eftir í borginni. Mikið var fjallað um hjálparstarf og hversu margir væru reiðubúnir til þess að stökkva af stað og hjálpa íbúum New Orleans í nauðum. Ég hef séð eina frétt um hamfarirnar í Asíu sem fjallar um hjálp frá Íslendingum Fyrirsögnin var: Tveir menn halda til Pakistan...



Svo er það hitt.
Er ég einn um það eða finnst ykkur líka að þessi blessaða fuglaflensa sé að nálgast armageddon-stigið í fréttaflutningi? Nú keppast allir fjölmiðlar við það að segja okkur að hún ætli sér allt lifandi að drepa og alvarlegasta fréttin birtist í morgun, grunur leikur á að nýjasta fórnarlambið sé fundið: Haftyrðill í Noregi!

Hjálpi okkur....

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters