11 nóvember 2005

Tilþrifalítið inngrip í aðgerðarleysi


Ja-há. Ekkert bloggað í ríflega viku.
Ekki að það hafi truflað mig en það virðist vera til fólk þarna úti sem lætur það fara mikið í taugarnar á sér ef ekkert nýtt er borið á borð a.m.k. tvisvar á viku. Ég geri þá sjálfsögðu kröfu að "lesandi minn" láti þá í sér heyra endrum og eins og læði inn athugasemdum. Taktu það til þín góði - kommentakerfið virkar víst!

Svo er það tilkynningaskyldan.
Hressó í kvöld (föstudag 11. nóvember) frá 10 - 01. Sváfnir og Halli leika valin númer af vinsældarlistum síðustu aldar.

Myndin er tekin þegar við félagar komum fram á árlegri samkomu áhugamanna um tilfinningagreind spendýra. Þar fluttum við tónlist úr söngleiknum Glitraðu og vertu samkynhneigður eftir Leonard Bernstein í þýðingu Ísidórs Smára við kóreógrafíu eftir listakonurnar Dúrý og Frirrý.

Ég kíkti áðan á Mbl og brá í brún. Fannst í augnablik að Gústav Svíakonungur hefði látið sér vaxa skegg. Kíkið á það...

Njótið helgarinnar.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Jamm það leynir sér ekki að Gústi hefur látiið spertta vel og kannski verið helst til of duglegur við sólböðin.

föstudagur, 11 nóvember, 2005  
Blogger Smútn said...

Sko - þetta gastu!

mánudagur, 14 nóvember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er afleiðing af of mikilli ljosabekkjanotkun

mánudagur, 14 nóvember, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters