Debet og kredit tilverunnar
Tilveran hefur einstakt lag á að jafna út hlutina segja sumir. Máli sínu til staðfestingar benda þeir á að sá sem upplifi mikla hamingju og/eða heppni fái hið gagnstæða fljótlega í hausinn. Sjálfur trúi ég því trauðla að einhver eða eitthvað okkur æðra sjái um að skammta okkur gott og illt, hamingju og óhamingju, heppni og óheppni í tilviljanakenndum gusum sem jafnast út yfir árið. Einhverskonar altsjáandi Master of Balance sem virkar eins og Seðlabankinn í hagkerfinu.
Hins vegar er nú oft gaman að skoða tilviljanir. Líkt og þá að degi eftir að ég hreyki mér af því á heimili mínu að hafa ekki orðið misdægurt í tæpt ár, skuli ég lúta lægra haldi fyrir pestarlíki einhverju. En upp er ég risinn að nýju.
Í kvöld liggur leiðin á tónleika í Salnum. Þar verður Diddú á minningabrautinni, byrjar á Bernstein og kallar svo fram sína gömlu félaga í Spilverkinu, þeas alla nema Bjólu. Svo er líka gaman að segja frá því að hann Diddi, "trommuspilarinn minn" verður þátttakandi í þessu öllu saman. Gott hjá Didda. Ekki amalegt að fá að hrista Helenustokkinn á meðan Egill syngur Plant no trees!
Á morgun, laugardag, verðum við drengirnir á Café Aroma. Það fer nú alveg að koma tími á ykkur nokkur að reka inn nefið.
Og að lokum kæru vinir, það verður ekki fuglaflensan sem mun granda okkur öllum. Ó-nei. Það verða rússneskir drápsíkornar! Njótið helgarinnar.

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home