19 desember 2005

Jólin, já einmitt

Sat hlaðborð jóla ásamt Bifrestingum á föstudag á Hótel Borg. Spilaði merkilega friðsaman frændafótbolta á laugardag, lék með mönnum Ársins á Café Aroma á laugardagskvöld. Hitti erkifélaga mína á sunnudagskvöldi sem hafa ekki náð að vera allir á sama stað á sama tíma í 2 ár. Pólverjarnir halda áfram að fara fimum höndum um steypu, gips, sparsl og sitthvað annað á heimili voru.

Veit ekki hvort að félagi minn úr hljómsveitinni Free Country hafi húmor fyrir myndinni, tek samt áhættuna. Var settur á bið í símtali fyrr í dag og þá fór blýanturinn af stað. Treysti því að hann veiti mér syndaaflausn vegna svika við alþýðuna fyrr en síðar.

Gleðileg jól.

3 Comments:

Blogger Varríus said...

Frábær mynd - þekkti mig strax. Held samt að ég sé búinn að týna þessum trefli. Eða er þetta Terfell?

mánudagur, 19 desember, 2005  
Blogger Smútn said...

Mikið rétt þetta er terfell og fyrir aftan þig eru nokkrir að Brynna músum...

mánudagur, 19 desember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Og svo skróparðu í mánudagsboltanum, ófétið þitt! Engin jólasteik fyrir þig.

þriðjudagur, 20 desember, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters