25 árum seinna
Ég var 11 ára.Ég fór með Orra vini mínum niður í Þverholt í höfuðstöðvar Dagblaðsins Vísis (öllu meinlausari forvera DV). Urmull af gríslingum hafði safnast saman í afgreiðslunni í sömu erindagjörðum og við. Við ætluðum að selja blöð svo við gætum birgt okkur upp af sælgæti. Við fengum afhentan blaðabunka, þann fjölda sem við sammæltust um að við gætum kómið í lóg, prangað inn á ættingja og nágranna.
Orri kjaftaði sig inn á sendil sem var á leið aftur í Kópavog og úr varð að við fengum far. Bílinn var skutbíll af einhverri tegund sem ég kann ekki að nefna og eina plássið var aftur í skotti. Í þá daga þótti lítið mál þótt tveir ellefu ára guttar rúlluðu til og frá í farangursrýminu. Þarna lágum við, býsna svalir að okkur fannst á ægilegri stæðu af dagblöðum og vel bólstrað til allra hliða. Það var ekki fyrr en á miðri leið sem ég gerði mér far um að kíkja á forsíðufréttirnar. Aðeins ein stór stríðsfyrirsögn: JOHN LENNON MYRTUR Í NEW YORK.
Ég áttaði mig á því á meðan ég rifjaði upp þetta hvar-varst-þú-þegar-lennon-var-skotinn móment að undirtitill síðu þessarar er einmitt frá honum kominn. Lennon hefur tæpast haft rænu á því að Mark David Chapman sem fékk hjá honum eiginhandaráritun yrði honum að bana aðeins örskömmu síðar. Hér má þá líklega snúa út úr og segja að dauðinn sé einnig það sem hendi menn þegar þeir eru í óða önn við að sinna öðru. Tvær línur úr því lagi sem ég tel (í dag) hans besta:
Half of what I say is meaningless
But I say it just to reach you, Julia
Minningin lifir.

4 Comments:
Já einmitt blessuð sé minning hans þó svo að kallinn hafi verið óttalegur hræsnari. Annars held ég að orðið standpína sé íslenskun á orðinu stamina.
Einmitt, það já... hmmmm
(vill einhver hringja á bíl fyrir hann?)
of lengi "erlendis" spurning...
kómið í lóg?
Pooran is lost!
Uppgötva það líka að ég man ekki eftir þessum degi, var aðeins fimm ára svo kannski er mér fyrirgefið, man reyndar eftir því að Abelína langamma gaf mér og Daða rauðar hjólbörur um svipað leyti... and the moral of the story is ... smoking can ruin your health!
Skrifa ummæli
<< Home