02 desember 2005

Ef dæma skal bækur þá gjörið svo

Stundum er ekki annað hægt en að rifna í sundur í hrifningarhlátri. Ritdómur Bjarna nokkurs Frímanns um Skugga-Baldur er znilld. Stal blákalt hluta hans ykkur til gleði:

En þegar ég hafði barist í gegnum tvo þriðjunga bókarinnar eða svo sagði líkaminn stopp, og mér tókst með naumindum að skreiðast útá svalir, þar sem upp gaus spýja. Þar spjó ég svo lungann af þeim tíma sem leið milli meðleikstímans og hádegistónleikanna, en þar sem vindur var með hvassasta móti hafnaði megnið af spýjunni á austurhlið sjávarútvegsráðuneytisins. Ef einhver skyldi vera á vesturleið um Kalkofnsveg næstu daga ætti hann þess kost að sjá gastrónómískan feril minn prentaðan í ælu á sjávarútvegsráðuneytið.

Annars er síðan hans hér og þar má lesa þetta í heild sinni...

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Gott frændi gott. Þessi Frímannáungi er frábær. Hef sterklega á tilfinningunni að líkami minn muni bregðast svipaðar við SB.

laugardagur, 03 desember, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters