Oprah og friðarverðlaun Nóbels
Stundum hefur maður klórað sér í kollinum yfir friðarverðlaunum Nóbels. Á tímabili fannst mér sem þessari viðurkenningu væri dritað út til manna sem sýna viðleitini til friðar eftir áratuga erjur og skærur. T.a.m. þegar Arafat, Peres og Rabin voru allt í einu orðnir friðarins menn.
Dettur í hug í þessu samhengi ein af þeim setningum biblíunnar sem ég felli mig ekki við en hún er eitthvað á þann veg að meiri fögnuður muni ríkja á himnaríki yfir einum iðrandi syndara en heilum hellingi af þeim sem hafa rembst við að fara í gegnum jarðlífið eftir boðum guðs og Jesúm. Mér finnst þetta eitthvað svipað óskiljanlegt og bið þá sem telja sig hafa frekari innsýn í þessa hugmyndafræði að hjálpa mér að skilja þetta...
En nú missti ég mig aðeins.
Friðarverðlaun Nóbels eru kannski að taka nýja stefnu ef marka má frétt mbl.is um Oprah Winfrey. Hún ku hafa mætt í þátt David Letterman eftir að hafa þverneitað að setjast sem gestur í þáttinn í mörg ár. Fullyrða bandarískir fjölmiðlar (ekki farið nánar út í það hverjir) að þessi umskipti hennar skrifist á "einbeittan vilja hennar til að hljóta næstu friðarverðlaun Nóbels."
Jæja.

1 Comments:
Oprah er djöfullinn. Ég fer ekki ofan af því.
Skrifa ummæli
<< Home