Jess monní ollræt
Alþjóðavæðingin hefur læst klónum í húseign vora. Sem stendur eru tveir pólskir handverksmenn í óða önn að klæða loftið í kjallaranum og reisa milliveggi. Samskiptin okkar á milli verða oft á tíðum æði frumstæð þar sem pólskan mín er fráleit, íslenskan þeirra sömuleiðis, ensku hafa þeir ekki á hraðbergi og þýskan sem þeir grípa til endrum og eins er ekki beint mitt uppáhald. Hugmyndin um esperantó fer að verða ansi þekkileg.
Merkilegt samt hversu langt er hægt að komast með alþjóðlegu handapati, blaði og blýanti og einföldum en greinilegum svipbrigðum. Ég hef komist að því að "nída" (skriftarháttur óþekktur) þýðir klæðning! Manni er ekki alls varnað.
En nei, þessir ágætu menn féllu ekki af himnum ofan, þeir eru hluti af starfsliði Húsverks sem tekur að sér fjölbreytt húsverk. Þegar eigandinn hafði tekið út verkið, reiknað út magn efnis og umfangs mættu þeir á svæðið, Pavel og Robert og hófu störf. Sú litla enska sem heyrist í kjallaranum hefur að miklu leyti takmarkast við tvö orð: No problem.
Og svo merkilega vill til að síðan þessir harðduglegu menn bökkuðu í hlað með kerru fulla af einangrun og blikkplötum hafa hlutirnir gerst hratt og örugglega. Allt sem við biðjum um er no problem. Á tímabili hafði ég áhyggjur af því að þeir skildu ekki fyllilega hugmyndir okkar um ljós og rafmagn og reyndi eftir megni að koma þeim í skilning um að gera þyrfti ráð fyrir rafmagnsrörum í klæðningunni. Heilmikið handapat, pappírskrot og alþjóðlegur látbragðsleikur fór af stað. Ekki leist mér á blikuna þegar ég skildið við þá félaga. Taldi fullvíst að tengdafaðir minn sem hafði af öðlingsskap boðið fram krafta sína til rafvæðingarinnar kæmi að fullreystum veggjum án nokkurra möguleika á ídrætti rafmagns. Stuttu seinna lít ég í neðra og kom þá að þeim félögum að draga rafmagn í rör og dósir nákvæmlega eftir óskum mínum. Þessir menn gera bókstaflega allt!
No problem.

1 Comments:
Ég ætla rétt að vona að þú standir undir nafni sem húseigandi og stórgrósser og arðrænir verkamennina duglega, gefir þeim úldið ket og skkemmda mysu.
Það gerði ég.
Skrifa ummæli
<< Home