19 desember 2005

Spilagleði milli jóla og nýárs

Þá er það afráðið...

29. desember verður hin árlega spilagleði mín. Staðurinn er Póstbarinn, (Hótel Borg á vinstri hönd, Skólabrú á hægri) klukkan 22.oo. Mun ég þá ásamt fríðu föruneyti leika og syngja eigin tónsmíðar í bland við annarra.

Veit einhver símann hjá Kiefer? Það þarf að láta hann vita!

Leikfélagar mínir eru aukvisar öngvir, Halli á hljómborð, Diddi á trommur, Þórir á bassa og Sigurgeir á rafgítarinn. Síðustu helgina í janúar er svo komið að því að taka upp nokkur lög. Harmur var að oss kveðinn í vor en þá glötuðust upptökur sem höfðu kostað talsverðan undirbúning og æfingar og tóku sjálfar heila helgi. Jæja jæja, learning expiriens gæti einhver sagt og ég gæti buffað hann...

En munið endilega. Fimmtudagur 29. desember. Aðeins 500 krónur inn!!!!

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Eina experience sem þú þarft er að stafa orðið experience.

þriðjudagur, 20 desember, 2005  
Blogger Smútn said...

Er Anínómus algengt nafn á Sólheimum?

þriðjudagur, 20 desember, 2005  
Anonymous Nafnlaus said...

Kæri frændi. Hvernig væri að láta saklausa menn hafa aðgagns orð að blogginu sínu þannig að þeir geti varið mannorð sitt?

miðvikudagur, 21 desember, 2005  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters