Áramót - smáramót
Strengdi þess heit um áramótin að ég mundi aldrei aftur strengja heit um áramót. Þar af leiðandi kafsigldi ég heitstrengingu minni á sömu stundu og ég strengdi svo líklegast kem ég út á sléttu.
Hins vegar tók ég það loforð af sjálfum mér að á þessu ári muni ég:
Gefa út geisladisk (og hana nú)
Lesa meira, helst heimspeki en einnig skáldverk
Semja meira af tónlist
Spila meiri fótbolta (lágmark tvisvar í viku)
Horfa meira á hið stórbrotna Knattspyrnufélag Liverpúlborgar
Einnig tók ég loforð að sjálfum mér að ég skuli reyna að:
Gera “alls ekki neitt” mun oftar (sem er stórlega vanmetið fyrirbæri)
Hlusta aðeins lengur áður en ég byrja að mala og “finna út úr málinu”
Horfa sem minnst á SKJÁ-Einn
Verða betri en ég er (eins og Vilhjálmur söng)
Annað sem fór í gegnum huga minn á þessum tímamótum var sú áleitna spurning hvort velsæld okkar væri að gera út af við okkur? Eftir að hafa étið mér til óbóta fjórða daginn í röð, lá ég með Fréttablaðið í sófanum, þaninn af bjúg sökum ofneyslu reyktra kjötvara, skorðaði blaðið af með konfektskálinni, malt-og-appelsíntaumarnir láku út úr munnvikjum mínum og magi og heili voru strax farnir að skipuleggja aukavaktir á bráðamóttöku þegar selspikaður magi minn rann af einu horni blaðsins og við blasti grein Sverris Jakobssonar um “Fórnarkostnað kapitalismans”. Gott og vel, það má eflaust deila um hin hagfræðilegu sjónarmið greinarinnar en það er erfitt að deila um hitt að við fitnum og fitnum á meðan 8 – 9 milljónir barna deyja úr hungri á ári hverju.
Hvað erum við að hugsa? (rop)

2 Comments:
Fótbolti 2x í viku og þú hættir að fitna en veit ekki hvort það hjálpa börnunum svo mikið?
Annars er aldrei að vita hverju ég fæ áorkað ef ég er 10 kg léttari. Hvur veit, ég gæti tekið upp á ýmsu. Brauðfæði þó ekki allan heiminn - þekki mín takmörk en VONA út í hið óendanlega. Daginn sem við hættum að vona kæri frændi þá getum við pakkað saman...
Skrifa ummæli
<< Home