02 janúar 2006

Gríðarlegur sjónarsviptir


Það fór ekki framhjá unnendum góðrar dagskrárgerðar og framsækni í fjölmiðlun að ávarp útvarpsstjóra var ekki á sínum stað í dagskrá Ríkisútvarpsins á gamlárskvöld. Ég spyr nú bara: Hvað verður skorið niður næst? Sunnudagshugvekjan, Út og suður eða kannski Maður er nefndur? Þetta er skammarlegt.

Það getur vel verið að það sé kominn nýr útvarpsstjóri, en skiptir það raunverulega máli? Væri ekki hægt að koma því svo fyrir að sá gamli fengi að ávarpa þjóðina áfram og stappa í hana stálinu líkt og hann hefur gert af svo mikilli elju síðustu ár?

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters