10 janúar 2006

Donner und Blitz

Það hefur verið einstaklega róstursamt á Hagatorgi undanfarna daga.

Þegar hringt er til frímínútna í Hagaskóla læðast þráfaldlega nokkrir slánar út á mitt torg, stilla upp einhverskonar púðurtunnum við listaverk Sigurjóns Ólafssonar. Þetta eru engar aularakettur heldur alvöru stöff sem maður hefur hingað til aðeins séð í fréttaumfjöllun um Persaflóastríðið. Svo sprengja þeir draslið í loft upp með þeim afleiðingum að rúðurnar í gamla bíóhúsinu hristast og nötra. Á göngu minni í morgun við Hótel Sögu rétt fyrir klukkan 10.00 fór hjartað í stopp í óþægilega langan tíma í kjölfar slíkrar spreningar. Sá slöttólfana hoppa af gleði og gefa high-five.

Íhugaði að taka "brjálaða kallinn" á þetta, þið vitið: "Strákar, hvern djöfulinn eruð þið að gera... (og allt það) en...þá varð ég var við annars konar hróp og varð litið yfir að Melaskóla, sem nota bene er barnaskóli. Þar stóðu litlu gríslingarnir í hnapp og smám saman greindi ég í gegnum hellurnar hvað það var sem hópurinn æpti:

Meira, meira, meira...

Það var býsna skondið.

1 Comments:

Blogger BbulgroZ said...

Þig langaði að segja "nú sker ég gat á boltann ef þið hættið þessu ekki!!!" eða eitthvað í þessum anda he he he...

þriðjudagur, 10 janúar, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters