Undir áhrifum

Ég sé að Arnar fer mikinn í upprifjun á músík og tónlistarþroska sínum og það er vel. Sjálfur hugsaði ég mig um í augnablik og neyddi mig eins langt aftur og ég mögulega komst og merkilegt nokk þá var það blessunin hún Svanhildur sem kom upp í hugann. Ég man eftir merkilegri deilu sem snérist um það hvort að mynd af söngkonunni á bakhlið plötunnar væri teikning eða ljósmynd. Aldrei fékkst niðurstaða í málið, ekki frekar en hvort ein raddanna sem röfluðu í talstöðina í Yellow submarine, segði "Loftskeytastöð Íslands"...
Enn þann daginn í dag held ég því fram að Alli, Palli og Erlingur sé eitt af betri lögum poppsögunnar. Annars líst mér vel á að taka saman svipaðan lista, en það verður að bíða betri tíma.

2 Comments:
Jú skemmtilegt er þetta nú drengur minn. Þetta er tímafrekt en tíminn er vinur minn núna...
Hún var teiknuð! Svona skvísur eru ekki til í alvörunni og photoshoppið var ekki komið.
Skrifa ummæli
<< Home