05 janúar 2006

Strákanir og fótanir þeirra (einnig: einn settur á skilorð)

Það sem af er nýju ári hafa tveir ungir menn mér nákomnir slasað sig á fæti. Annar varð fyrir skoteldi á gamlárskvöld og brann illa, hinn sleit liðbönd í knattspyrnu tæpum tveimur sólarhringum síðar. Nöfn þeirra beggja byrja á "A", þeir eru báðir fæddir seint á árinu, þeir eru báðir yngri en ég, þeir eiga báðir börn hvurs nöfn hefjast á sérhljóðum, þeir eiga báðir konur sem bera tveggja atkvæða nöfn og koma báðar af landsbyggðinni, þeir hafa báðir unnið í Keflavík og eiga þar ættingja, þeir eru...

Þetta væru líklega stórmerkilegar staðreyndir ef maður væri t.d. Hermundur Rósinkranz en svo er víst ekki. Hvað sem öllu líður sendi ég þeim Arnari og Adda góðar kveðjur. Spurning um að kynna þá, þá gætu þeir hlustað á óskalög sjúklinga saman. Bara hugmynd!

Svo eitt enn.
Ákveðinn aðili hefur verið settur á skilorð í linkadeildinni. Ef ný færsla verður ekki uppi við fyrir 10. þessa mánaðar verður hann máður af lista sambloggara. Honum tókst að fara í gegnum allan desembemánuð án þess að ibba blogg einu sinni.

Eins og Ragnheiður gamli kennarinn minn í Digró sagði þegar hún reiddist yfir einhverju sem gert hafði verið en vildi ekki láta uppi hver hefði drýgt glæpinn (þurfti engu að síður að básúna út genaral warning sem víti til varnaðar): "Taki þeir til sín sem eiga."

Í viðleitini sinni til þess að renna augunum í þjósti yfir allan bekkinn án þess að horfa beinlínis á neinn endaði hún samt alltaf á því að stara á mig og Orra til skiptis...

2 Comments:

Blogger BbulgroZ said...

Já er þessu ekki öllu stýrt einhverstaðar frá hm...þetta getur allavegana ekki verið tilviljun þetta með okkur gælunafnana.

fimmtudagur, 05 janúar, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

Þetta er rosalega spooky!
Hermundur

föstudagur, 06 janúar, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters