Skemmtilegt mót að baki. Ég vann!

Sunnudagsmorgun þó ekki sitji sólin við borðið. Fjölskyldumót Álfhólsvegs 83 í manngangi er nýlokið. Stórmeistarinn (sjá mynd) hélt mér í vörn framanaf en varð þó að játa sig sigraðan að lokum en tæpt stóð það maður lifandi. Aðrir keppendur mættu ekki á mótið sökum syfju sem er nokkuð útbreidd á meðal kvenkyns íbúa hússins þegar þetta er skrifað.
Las í Fréttablaðinu að Nick Cave hafi mætt óvænt í Laugardalshöll í gærkvöldi og tekið lagið á tónleikum náttúruverndarsinna. Gaman væri að vita hvað hann söng? Veit einhver meira um þetta?
Annars er það orðið daglegt brauð að fjölmiðlar fjalli um H0llywoodstjörnur eða annað celebrity á Íslandi. Tarantino. Kiefer Sutherland, Nick Cave, Julia Styles, Forest Whitaker og hvað veit ég. Ég man þá tíð þegar koma Allan Simonsen, knattspyrnudvergs frá Danaveldi, bar helst til tíðinda í heimsóknum fræga fólksins. (eða dreymdi mig það?)

3 Comments:
A. Simonsen kom hingað og Horst Tapper (Derreck) líka
Hef eftir áreiðanlegum heimildum (tónleikagesti) að Mr. Cave lét ekki sjá sig. Það mun þó hafa staðið til.
Aha- svo Fbl hefur bara tékið sénsinn og búið til fréttina fyrir fram!?!
Hugsa sér...
Skrifa ummæli
<< Home