14 janúar 2006

Hér er ég!

Eitt af því versta sem getur hent nokkurn mann, fyrir utan það að lenda á forsíðu DV, er líklegast það að enginn sakni hans eftir að hann fer.
Það yljar mér því skiljanlega að Arnar skuli lýsa eftir mér í síðustu færslu sinni. Að hluta til liggur sökin þó hjá honum sjálfum. Já börnin góð, því ég hef verið svo bergnuminn við upprifjun hans á tónþroskanum að ég hef vart mátt mæla. Svo rammt kveður að þessu að ég hef frekar eytt tíma mínum í að fylgjast með en að sletta mér fram.

Þar að auki hafa veikindi hrjáð fjölskyldumeðlimi svo ég hef verið í hlutverki hins auðmjúka omsorgs-fulltrúa. Veðurhamurinn síðustu daga hefur ekki auðveldað för okkar af heimilinu. Þó verð ég að taka fram að ég hef alltaf komist upp úr heimkeyrslunni á mínum ágæta Focus á meðan Landkrúserinn í næsta húsi endaði för sína í húsvegg mínum í sömu erindagjörðum í gærkvöldi.

Menn ársins verða í Hafnarfirði í kvöld, Café Aroma, en ekki hvar!

3 Comments:

Blogger BbulgroZ said...

Ahhh gott að vita til þess að ekkert meira ami að. Ég verð nú að afboða mig á Aroma í kvöld vegna líkamlegra annmarka, en ég sakna þín.

laugardagur, 14 janúar, 2006  
Blogger Refsarinn said...

Mikið er gott að fá færslu frá þér að nýju. Þín hefur verið sárt saknað. Vonandi nær fjölskyldan heilsunni sinni fljótt aftur.

laugardagur, 14 janúar, 2006  
Anonymous Nafnlaus said...

hæ þetta er dódí litla frænka hennar erlu en hva um það, ég hérna var að pæla hvað u tekur fyrir að spila eitt kveld i keflavik á paddys svona 3 tima eða svo bara þú einn en láttu mig endilega vita, bloggið mitt er
http://blog.central.is/dodi83

sunnudagur, 15 janúar, 2006  

Skrifa ummæli

<< Home

Free Counter
Web Counters